Lonnie Rein

Lonnie útskrifaðist með tannlæknapróf frá Kaupmannahafnarháskóla árið 1999 og rak lengi eigin tannlæknastofu á Kaupmannahafnasvæðinu að námi loknu. Árið 2020 flutti hún til Íslands og hefur starfað hér á landi sem tannlæknir síðan. Lonnie talar góða íslensku, ensku og auðvitað dönsku.

Lonnie er með bæði danskt og íslenskt tannlæknaleyfi og er meðlimur í Tannlæknafélagi Íslands.

Ásgeir Gunnar Ásgeirsson

Ásgeir útskrifaðist sem tannlæknir frá Tannlæknadeild Háskóla Íslands árið 2009 og lauk sérfræðinám í tann- og munngervalækningum samhliða meistaragráðu í tannplantafræðum við Háskólann í Zürich í Sviss árið 2020 og  fékk sérfræðileyfi í munn- og tanngervalækningum 2024.

Eftir útskrift starfaði Ásgeir sem almennur tannlæknir til ársins 2012, áður en hann hélt til Zürich í Sviss sem styrkþegi ITI (International Team for Implantology). Þar starfaði hann við Háskólann í Zürich, bæði við klíníska meðferð sjúklinga og rannsóknarstörf. Þar öðlaðist hann dýrmæta reynslu á sviði tannplantafræða og enduruppbyggingar munns.

Aðaláhersla í starfi Ásgeirs er greining og lausn yfirgripsmikilla og flókinna vandamála í munni með heildstæða nálgun að leiðarljósi. Það felur meðal annars í sér ítarlega skoðun, mat og gerð einstaklingsmiðaðra meðferðaráætlana. Ásgeir sérhæfir sig í hönnun og smíði króna, brúa og gervitanna í nánu samstarfi við tannsmiði, auk ígræðslu tannplanta og umsjónar með smíði og uppbyggingu á þeim. Markmið Ásgeirs er að veita vandaða, faglega og langtímamiðaða meðferð sem byggir á nýjustu þekkingu, nákvæmni og faglegu samstarfi


Ásgeir er meðlimur í Tannlæknafélagi Íslands og International Team of Implantology (ITI),

Nino Fernandes

Nino, sem heitir fullu nafni Marcellino Christian Fernandes, útskrifaðist frá Tannlæknadeild háskólans í Árósum árið 1998 og lauk sérfræðinámi í munn- og kjálkaskurðlækningum frá Ríkisspítalanum í Kaupmannahöfn árið 2007.

Strax að loknu sérnámi opnaði Nino kjálkaskurðlæknastofu í Kaupmannahöfn sem hann átt og rak í 15 ár. Í dag rekur hann fyrirtæki með eiginkonu sinni þar sem hann ferðast um Danmörku og aðstoðar almenna tannlækna með skurðaðgerðir á stofum þeirra. Nino kemur einu sinni í mánuði til Íslands og vinnur í Bæjarlindinni með Gunnari og Júlíusi eina viku í senn.

Nino er með bæði danskt og íslenskt sérfræðileyfi í munn- og kjálkasskurðlækningum. Hann er meðlimur í Tannlæknafélagi Íslands, Félagi munn- og kjálkaskurðlækna á Íslandi (FMKSÍ) og Félagi munn- og kjálkaskurðlækna í Skandinavíu (SFOMK).